Íslensk tunga
"Í Íslenskri tungu I-III varpa virtir fræðimenn ljósi á innviði íslenskunnar og kynna aðferðir vísindanna við að greina málið og skilja. Lesa má um smæstu hljóðbylgjur, kerfi íslenskra málhljóða, beygingu orða og innri gerð, allt til íslenskrar setningagerðar. Aukinheldur er fjallað um sögulega þróun móðurmálsins og vikið að forvitnilegum greinum eins og hljóðskynjun, máli og tölvum, orðræðugreiningu, málstoli og máltöku barna. Saman spanna því bækurnar þrjár vítt svið málvísinda. Þær eru nauðsynlegar öllum þeim sem vinna með tungumálið, vilja kynna sér það til hlítar og fylgjast með fræðigreininni sem við það fæst"--Publisher's website
Print Book, Icelandic, 2005
Almenna bókafélagið, Reykjavik, 2005